Dvali er ástand þar sem líkamsstarfsemi dýra breytist til þess að spara
orku, til dæmis yfir köldustu mánuði ársins. Líkamshiti og hjartsláttartíðni
lækka og það hægist á efnaskiptum líkamans. Dýr geta verið mislengi í þessu
ástandi og þekktasta dæmið líklega þegar birnir leggjast í vetrardvala.
Áður en dýr leggjast í dvala safna þau gjarnan miklum fituforða til að
brenna á meðan á dvalanum stendur.
Þrátt fyrir að dýrin séu nokkuð óvirk á meðan á dvala stendur er ýmislegt
sem getur gerst í dvalanum. Til dæmis ranka birnur við sér í til að fæða
húna sína og mjólka þær í dvalanum svo húnarnir vaxa og dafna fram að vori.
Til er mismunandi gerðir dvala. Dýr sem leggjast í langan dvala þar sem þau
ranka lítið sem ekkert við sér á meðan hann stendur yfir eru í dvala sem
drifinn er af lengd dagsins á heimasvæði sínu og breytingum á
hormónastarfsemi þeirra. Styttri og léttari dvalar eru hins vegar fremur
drifnir áfram á breytingum á hitastigi í umhverfi dýranna og aðgengi þeirra
að fæðu.
Froskategundin Rana
sylvatica eru
sú tegund sem fer í hvað öfgafyllsta dvalann. Allt að 65% vatns í líkama
froskanna frýs og þeir geta verið í því ástandi í sjö mánuði.