- Lotukerfið eins og við þekkjum það í dag var fyrst birt af Dimitri Mendeleev árið 1869. Lotukerfi Mendeleev var þó ekki það fyrsta heldur höfðu aðrir reynt fyrir sér í flokkun frumefna á undan honum. Þau lotukerfi náðu þó ekki vinsældum hjá vísindasamfélaginu.
- Ekki finnast öll frumefni lotukerfisins í náttúrunni, eða aðeins 94 fyrstu efnin. Önnur frumefni hafa vísindamenn myndað við ákveðnar aðstæður. Fyrsta frumefnið sem vísindamönnum tókst að mynda var Technetium.
- Frumefnum lotukerfisins er raðað eftir atómtölu (fjölda róteinda) efnanna. Þannig er vetni fyrsta frumefni lotkerfisins með atómtöluna 1 en Ununoctium það síðasta með atómtöluna 118.
- Nýjustu efni lotukerfisins bættust við það í desember árið 2015. Það voru efni 113, 115, 117 og 118 sem bera heitin Ununtrium, Ununpentium, Ununseptium of Ununoctium en öll voru þau mynduð af vísindamönnum við ákveðnar aðstæður.
- Meirhluti frumefna lotukerfisins eru málmar. Öðrum efnum lotukerfisins er skipt í málmunga, málmleysingja og óþekkt efni sem vísindamenn hafa ekki enn fundið eða myndað. Þrátt fyrir að svo marga málma sé að finna í lotukerfinu eru málmleysingjar mun algengari í náttúrunni en málmar.
Heimildir:
Wikipedia
Live Science